KJÖLUR er stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu sem varð til við sameiningu Félags opinberra starfsmanna í Húnavatnssýslum, Starfsmannafélags Akureyrarbæjar, Starfsmannafélags Borgarbyggðar, Starfsmannafélags Dalvíkurbyggðar og Starfsmannafélags Siglufjarðarkaupstaðar, á fundi í Munaðarnesi 15. maí 2004. KJÖLUR er aðildarfélag BSRB.

Tilgangur félagsins er að vera í forsvari fyrir einstaklinga við gerð kjarasamninga og vinna að öðrum hagsmunamálum, vernda réttindi félaganna og beita sér gegn hvers konar misrétti í launagreiðslum og starfskjörum.

Skrifstofa KJALAR er opin alla virka daga frá kl. 10:00-16:00 en vinnutími starfsmanna er sveigjanlegur frá kl. 08:00 til 17:00.