Eingöngu fyrir starfsmenn sveitrarfélaga, Norðurorku hf. , Hjallastefnu og Dalbær.
Stofnfélagar eru: Launanefnd sveitarfélaga sem starfar á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga kt. 550269-4739, Borgartúni 30, 105 Reykjavík fyrir hönd þeirra sveitarfélaga og annarra aðila sem hún hefur samningsumboð fyrir og KJÖLUR - stéttarfélag í almannaþjónustu kt. 451275-2599, Ráðhústorg 3, 602 Akureyri.
Mannauðssjóður KJALAR kt. 590208-0350 Ráðhústorgi 3 Pósthólf 75 602 Akureyri.
Markmið sjóðsins er að stofna og reka sameiginlegan starfsmenntunarsjóð á grundvelli kjarasamnings KJALAR stéttarfélags og Launanefndar sveitarfélaga, sbr. gr. 13.4.2 í kjarasamningi frá 29. maí 2005. Sjóðurinn starfar einnig á grundvelli sambærilegra ákvæða í öðrum kjarasamningum KJALAR. Sjóðurinn sinnir markmiðum sínum á sviði símenntunar og mannauðs með því að veita styrki til: a) sveitarfélaga, stofnana og vinnuveitenda sem greiða í sjóðinn, b) KJALAR stéttarfélags og c) verkefna sem sjóðsstjórn skipuleggur eða á aðkomu að. Umsóknir skulu sendar stjórn sjóðsins þar sem fram kemur lýsing á því verkefni sem sótt er um styrk til, skipulagi þess, efnisinntaki, áætlaðri framkvæmd, kostnaði, öðrum styrkjum og framlagi umsækjanda.
Stjórn sjóðsins skal skipuð fjórum mönnum, þ.e. tveimur fulltrúum KJALAR stéttarfélags og tveimur fulltrúum vinnuveitenda, þar af a.m.k. einum frá Launanefnd sveitarfélaga. Varamenn í stjórn skulu vera tveir, einn frá hvorum aðila. Arna Jakobína Björnsdóttir formaður fulltrúi KJALAR Guðrún Ósk Sigurjónsdóttir varaformaður fulltrúi launanefndar sveitarfélaga. Guðbjörg Antonsdóttir meðstjórnandi fulltrúi KJALAR Hermann Jón Tómasson meðstjórnandi fulltrúi launanefndar sveitarfélaga.
Stjórn Mannauðssjóðs KJALAR hefur ákveðið á fundi 12. júní 2008 að halda stjórnarfundi a.m.k. þrisvar á ári, þ.e. í september, janúar og apríl. Á þessum fundum verða teknar til afgreiðslu þær umsóknir sem liggja fyrir hverju sinni. Gerast áskrifandi að uppfærslum þessarar síðu |