|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Vetrarleiga í Stóruskógum Vetrarleiga á orlofshúsum í Munaðarnes. Hús 21 stendur ekki langt frá þjónustumiðstöðinni. Þar eru rúmstæði fyrir 6 manns í tveimur herbergjum. Eitt hjónaherbergi með tvíbreiðu rúmi sem hægt er að breyta í tvö rúm. Í hinu herberginu eru fjórar kojur. Stofa og borðkrókur eru eitt rými og er það nokkuð rúmgott og auðvelt að búa þar til flatsæng. Sófasett er 1+2+3 og er húsið mjög vistlegt. Ný upptekið baðherbergi. Húsið er reyklaust. Hús 36 & 37 Húsin standa nyrst í Eyrarhlíð og er þar mjög friðsælt eins og reyndar alls staðar í Munaðarnesi. Þar eru rúmstæði fyrir 6 manns, eitt barnaherbergi með kojum, tvö herbergi með tvíbreiðum rúmum. Stofa og borðkrókur eru eitt rými. Í stofu er sófar 1+3. Húsin eru reyklaust. Öll húsin eru með sjónvarp og útvarp, bækur og spil eru til afþreyingar. Sængur og koddar eru í húsinu. Í eldhúsinu er ísskápur, eldavél með ofni, borðbúnaður og áhöld fyrir 8 manns. Kolagrill eru í húsunum. Á baðherberginu eru vaskur, salerni og sturta. Verönd er við öll húsin sem er með heitum potti. Skoða myndir Sjá heimasíðu BSRB Skoða grunnmyndir Leigutími: allt árið. Gerast áskrifandi að uppfærslum þessarar síðu |
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
KJÖLUR Stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu - Glerárgötu 24 önnur hæð - Akureyri - Sími: 525 8383 - Fax: 525 8393 - Netfang: kjolur hjá kjolur.is |