Merki Kjalar stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
Logo fræðsluseturs starfsmenntar
Starfsmat
Nýtt efni Eldra efni
26.1.2010
Nýr námsvísir

Námsvísir Fræðslusetursins Starfsmenntar fyrir vorönn 2010 er kominn út. Í honum er kynnt fjölbreytt námsframboð fræðslusetursins. Í boði eru fjölmörg þverfagleg námskeið sem efla starfshæfni á sviði tungumála, stjórnunar, samskipta og leiðtogafræða. Finna má bæði stutt námskeið og lengri námsleiðir sem dýpka þá þekkingu og hæfni sem fyrir er og styrkja stöðu starfsmanna.

Starfsmennt setur líka upp símenntunarkerfi með stofnunum og faghópum. Einnig er í námsvísinum fjallað um þá fjölmörgu skóla og sérhannaðar námsleiðir sem í boði eru á vorönn. Að venju er öll þjónusta Starfsmenntar félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu en einnig aðgengileg öðrum gegn gjaldi.




22.7.2010
Laust í orlofshúsum

  Yfirlit yfir laus orlofshús og íbúðir er að finna á bókunarvef orlofssjóðs. Þá viljum við vekja athygli á orlofsmöguleikum s.s. HótelEddu og Fosshótels afsláttaávísanir og fleira.

Allt nánar og til sjálfsafgreiðslu hér á vefnum. "Fyrstur kemur fyrstur fær."
Laust á Akureyri og Varmahlíð frá 30. júlí og fl.

lesa meira >>
 

KJÖLFESTA 1. tbl. 2010
KJÖLFESTA 3. tbl. 2009
KJÖLFESTA 2. tbl. 2009

Þú getur gerst áskrifandi að fréttum og uppfærslum á síðum. Smelltu hér til að gerast áskrifandi
 

  Hvalfjarðargöng


Seldir eru stakir miðar í Hvalfjarðargöng á kr. 580 stk. á skrifstofu KJALAR, einnig sendum við miða í pósti. Jafnframt er hægt að kaupa 10 miða í bunkti kr. 5800 í afgreiðslu í Hvalfjarðargöngunum.

KJÖLUR Stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu - Ráðhústorgi 3 - Akureyri - Sími: 525 8383 - Fax: 525 8393 - Netfang: kjolur hjá kjolur.is