Framboðsfrestur til stjórnarkjörs

Dagsetning: 16. febrúar - 7. mars
Tími: 00:00 - 00:00
Staðsetning:

Kjósa skal nýja stjórn á aðalfundi félagsins 29. mars nk. Stjórn félagsins skal skipuð níu félagsmönnum, formanni og sex meðstjórnendum, auk tveggja til vara. Stjórnarmenn skulu kosnir til þriggja ára í senn. Formann skal kjósa sérstaklega. Stjórnin kýs úr sínum hópi varaformann, ritara og gjaldkera.

Félagsmenn geta gert tillögu um stjórnarmenn og verða að minnsta kosti 25 félagsmenn að standa að tillögu félagsmanna um hvern stjórnarmann. Allar tillögur skulu vera skriflegar og berast stjórn félagsins a.m.k. þremur vikum fyrir aðalfund. Tillögum skal fylgja nafn, kennitala, starfsheiti, heimilisfang og heiti vinnustaðar þeirra sem tillaga er gerð um. Tillögum skal fylgja skriflegt samþykki þeirra sem tillaga er gerð um en að öðrum kosti telst tillaga um hann ógild.

Kosning stjórnar fer fram við allsherjaratkvæðagreiðslu. Kjörstjórn skal senda félagsmönnum kjörgögn og skal við frágang þeirra hafa hliðsjón af því sem tíðkast við utankjörfundarkosningu til Alþingis. Kosning skal standa yfir a.m.k. 15 sólarhringa og skal henni lokið sólarhring fyrir aðalfund. Atkvæði, sem berast kjörstjórn að þeim tíma liðnum skulu ógild. Nöfnum frambjóðenda skal raðað í stafrófsröð í hverjum hluta. Tilgreina skal nafn frambjóðenda, vinnustað og starfsheiti.